Microsoft 365 Business Standard áskrift
Business Standard er fyrir þau fyrirtæki sem vilja meira en grunninn – það er fullkomin blanda af afkastamiklum forritum, samvinnutólum og skýjalausnum. Þessi leið hentar vel fyrir teymi sem vinna mikið með skjöl, kynningar og verkefnastjórnun – bæði í skýi og í uppsettum forritum. Þú getur valið hvort Microsoft Teams sé hluti af leyfinu, og einnig hvort þú viljir bæta við Copilot Business fyrir snjallari vinnuflæði.
Innifalið:
- Outlook, Word, Excel, PowerPoint og OneNote (vef-, farsíma- og skjáborðsforrit)
- 1 TB OneDrive skýjageymsla á notanda
- Microsoft Exchange, SharePoint og val um Microsoft Teams
- Verkefnaumsjón með Microsoft Bookings og Forms
- Val um Copilot Business til að fá hjálp við greiningu, samantektir og skjöl




