Vantar þig aðstoð?

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að sækja fjarhjálparforrit Arinu.

Þegar forritið er opnað fær þjónustufulltrúi Arinu tilkynningu og tengist vél þinni innan tíðar.

Fjarhjálp
[email protected]
s: 419 9191
 

Vefkökustefna

Hér getur þú lesið stefnu okkur varðandi notkun á vefkökum (e. cookies).

 

Hvað eru vefkökur?

Heimasíðan okkar virkar best, fyrir þig og okkur, þegar notendur samþykkja notkun á vefkökum (einföldum þetta bara og köllum þetta kökur hér eftir…).
Kaka er upplýsingapakki, sem vafrinn sem þú notar vistar á tölvunni þinni, að beiðni vefþjóna. Kakan getur til að mynda innihaldið texta eða dagsetningar. Það eru engar persónulegar upplýsingar geymdar í köku. Þær upplýsingar sem við móttökum eru því nafnlausar. Flestar heimasíður nota kökur til að bæta upplifun gesta á síðunni.
Hver kaka hefur gildistímabil. Vafrinn eyðir kökunni þegar tímabilið rennur út. Hver kaka er bundin við þann vefþjón, sem sendi kökuna, og aðeins sá vefþjónn fær að sjá kökuna.

 

Hvernig notum við kökur?

Kaka segir okkur meðal annars hversu lengi gestur er á heimasíðunni okkar og hvaða síður eru skoðaðar, hvaða vafri er notaður og hvort gesturinn hafi komið áður á heimasíðuna okkar.
Þær upplýsingar sem safnast með kökunni innihalda engar persónuupplýsingar og notast því eingöngu til að kanna notkun gesta á heimasíðunni.

 

Hvað ef ég samþykki ekki kökur?

Þér er alls ekki skylt að samþykkja kökur á heimasíðunni okkar og er þér því fullkomlega frjálst að hafna þeim. Ef þú hafnar kökum geta hins vegar vissar þjónustur og hlutar á heimasíðunni ekki virkað sem skyldi eða vera í boði fyrir þig.

 

Eyðing á kökum

Flestir vafrar leyfa þér að eyða kökum sem hafa safnast upp á þinni tölvu. Það er breytilegt eftir vöfrum en yfirleitt hægt að fara í stillingar eða hjálp í vafranum sjálfum til að finna hvernig á að eyða kökum, einnig til að loka fyrir kökur almennt.