Arínu er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Arínu kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að starfsmenn, viðskiptavinir, aðrir viðsemjendur og einstaklingar, eins og við á hverju sinni, séu upplýstir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Ábyrgð
Arína upplýsingatækni ehf. kt. 600818-2010, hér eftir nefnt Arína eða Fyrirtækið, vinnur eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem fyrirtækið safnar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili. Arína hefur aðsetur að Hallgerðargötu 21, 105 Reykjavík, en rekur einnig skrifstofu fyrir daglegan rekstur að Hallgerðargötu 13, 105 Reykjavík. Arína er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið [email protected].
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Arína safnar upplýsingum um starfsmenn, viðskiptavini, og birgja sem fyrirtækinu er skylt að varðveita í samræmi við lög og reglur, samninga, samþykki hins skráða eða vegna annarra lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila.
Arína safnar persónupplýsingum um viðskiptavini sína í þrennskonar tilgangi; til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
Arína safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að Arína geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu.
Miðlun persónuupplýsinga
Arína nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Fyrirtækið geymir aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga.
Arína miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki eða í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga. Arínu er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi eða verktaki á vegum fyrirtækisins, og þá í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita viðskiptavinum þjónustu eða vöru sem viðskiptavinur hefur gert samkomulag um. Arína afhendir vinnsluaðilum einungis þær persónuupplýsingar sem þykja nauðsynlegar til að ná framangreindum tilgangi.
Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Arína trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Arína leigir aldrei eða selur persónulegar upplýsingar um viðskiptavini.
Öryggi gagna
Arína leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. Arína tryggir að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Persónuverndarstefna Arínu er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins er að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar. Arína áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara. Ný útgáfa skal auðkennnd með útgáfudegi. Persónuverndarstefnu Arínu má finna á www.arina.is. Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Arínu skal senda á netfangið [email protected].
Persónuverndarstefna var síðast uppfærð 24.2.2024