Verð

Skýr verðlagning fyrir fyrirtæki

Arína býður þjónustu eftir þörfum, reglulega tækniaðstoð með þjónustusamningi og mánaðarlegar þjónustulausnir fyrir öryggi, afritun og umsjón.

Við förum yfir umfang og áætlaðan kostnað áður en vinna hefst. Þannig færð þú skýra mynd af þjónustunni, verðinu og því fyrirkomulagi sem hentar fyrirtækinu.

Öll mánaðarverð eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.

Þjónusta eftir þörfum

Fyrirtæki geta leitað til Arínu vegna tækniaðstoðar og afmarkaðra verkefna án þess að vera með þjónustusamning.

Þjónusta

Án VSK.

Með VSK.

Almennt tímagjald

19.900 kr.

24.676 kr.

Fjarþjónusta er skráð að lágmarki 15 mínútur og þjónusta á staðnum að lágmarki 30 mínútur. Ferðatími vegna þjónustu á staðnum er rukkaður samkvæmt tímagjaldi.

Fyrir stærri innleiðingar og afmörkuð verkefni gerum við kostnaðaráætlun eða fast verð þegar það hentar verkefninu betur.

Þjónustusamningar

Regluleg aðstoð með fyrirsjáanlegum kostnaði

Með þjónustusamningi kaupir fyrirtækið ákveðinn fjölda þjónustustunda í hverjum mánuði. Tímarnir fara í tímabanka og nýtast við tækniaðstoð, ráðgjöf og önnur verkefni sem falla undir samninginn.

Tímar á mánuði

Afsláttur

Án VSK.

Með VSK.

0,5 klst.

0%

9.950 kr.

12.338 kr.

1 klst.

2,5%

19.403 kr.

24.060 kr.

2 klst.

5%

37.810 kr.

46.884 kr.

4 klst.

10%

71.640 kr.

88.834 kr.

8 klst.

15%

135.320 kr.

167.797 kr.

Ónýttir tímar safnast upp í tímabankanum og haldast þar í allt að sex mánuði. Þannig nýtast þeir síðar þótt þjónustuþörfin sé mismikil milli mánaða.

Ef tímarnir í bankanum klárast eru aukatímar rukkaðir með sama afslætti og fylgir samningnum.

Fjarþjónusta er skráð að lágmarki 15 mínútur og þjónusta á staðnum að lágmarki 30 mínútur. Ferðatími er rukkaður samkvæmt tímagjaldi með afslætti viðkomandi þjónustusamnings.

Þjónustu- og öryggispakkar

Vernd, afritun og umsjón í einu mánaðargjaldi

Þjónustu- og öryggispakkar Arínu sameina mikilvægar varnir, afritun og tækjaumsjón. Þeir eru verðlagðir fyrir hvern notanda og miðast við eitt tölvutæki fyrir hvern notanda.

Microsoft 365- eða Google Workspace-leyfi eru seld sérstaklega. Viðbótartæki, sameiginlegar tölvur og netþjónar eru verðlögð eftir umfangi.

Grunnvernd

Grunnvernd hentar fyrirtækjum sem vilja tryggja nauðsynlega vörn tölva og afritun mikilvægra gagna með miðlægu utanumhaldi Arínu.

Aukin vernd

Aukin vernd hentar flestum litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem vilja öflugri ógnagreiningu, miðlæga tækjaumsjón og betra utanumhald um tölvur og gögn.

Hámarksvernd

Hámarksvernd hentar fyrirtækjum sem þurfa víðtækari vöktun og aðkomu sérhæfðra öryggissérfræðinga þegar grunsamleg virkni greinist.

Viðbótarlausnir Arínu

Viðbótarlausnirnar er hægt að kaupa sjálfstætt eða nota með öðrum þjónustum Arínu. Uppsetning og innleiðing er verðlögð sérstaklega þegar hennar er þörf.

Þjónusta

Verð án VSK.

Verð með VSK.

Lykilorðastýring

590 kr. á notanda

732 kr. á notanda

Lykilorðastýring Plus

1.090 kr. á notanda

1.352 kr. á notanda

Öryggisfræðsla – leið 1

1.990 kr. á notanda

2.468 kr. á notanda

Öryggisfræðsla – leið 2

9.900 kr. grunngjald + 490 kr. á notanda

12.276 kr. grunngjald + 608 kr. á notanda

Lénavarnir

1.690 kr. fyrir hvert lén

2.096 kr. fyrir hvert lén

Öll verð í töflunni eru mánaðarverð.

Lykilorðastýring

Lykilorðastýring Arínu veitir starfsfólki örugga geymslu fyrir lykilorð og auðveldar örugga miðlun aðganga innan fyrirtækisins.

Plus-leiðin bætir við víðtækari yfirsýn og frekari öryggiseiginleikum. Við aðstoðum einnig við uppsetningu, innleiðingu og flutning lykilorða eftir þörfum.

Öryggisfræðsla

Öryggisfræðsla Arínu hjálpar starfsfólki að þekkja vefveiðar, svikatölvupóst, óörugg lykilorð og aðrar algengar netógnir með stuttu og aðgengilegu fræðsluefni.

Tvær aðskildar þjónustuleiðir eru í boði. Fyrri leiðin er verðlögð með föstu gjaldi fyrir hvern notanda. Hin leiðin byggist á grunngjaldi og lægra notendagjaldi og getur hentað betur þegar notendur eru fleiri.

Hjá fyrirtækjum með þjónustusamning getur grunngjaldið í leið 2 verið innifalið í samningnum. Fyrirtækið greiðir þá aðeins notendagjaldið samkvæmt verðtöflunni.

Lénavarnir

Lénavarnir Arínu hjálpa fyrirtækjum að koma í veg fyrir fölsun tölvupósts frá eigin léni og veita yfirsýn yfir hvaða þjónustur senda tölvupóst í nafni þess.

Uppsetning og lagfæring á SPF-, DKIM- og DMARC-stillingum er metin sérstaklega eftir núverandi umhverfi.

Hugbúnaður og aðrar lausnir

Arína býður hugbúnaðarleyfi og aðrar tæknilausnir fyrir fyrirtæki, meðal annars:

  • Microsoft 365
  • Microsoft Copilot
  • Microsoft Project, Visio og Power BI
  • Google Workspace
  • Adobe Acrobat og Creative Cloud
  • Síma- og samskiptalausnir

Verð hugbúnaðarleyfa geta breyst vegna verðbreytinga framleiðenda og gengis. Gildandi verð birtast á viðkomandi vörusíðum eða eru staðfest þegar gengið er frá pöntun.

Algengar spurningar

Get ég fengið þjónustu án þjónustusamnings?

Já. Tækniaðstoð og afmörkuð verkefni eru þá rukkuð samkvæmt almennu tímagjaldi eða samþykktri kostnaðaráætlun.

Hvað verður um ónotaða tíma?

Ónýttir tímar í þjónustusamningi safnast í tímabanka og haldast þar í allt að sex mánuði.

Hvað gerist ef tímarnir klárast?

Aukatímar eru rukkaðir með sama afslætti og fylgir þjónustusamningnum.

Eru hugbúnaðarleyfi innifalin í öryggispökkunum?

Já. Pakkarnir innihalda leyfi fyrir þeim öryggis-, afritunar- og tækjaumsjónarlausnum sem tilgreindar eru í hverjum pakka. Önnur hugbúnaðarleyfi, svo sem Microsoft 365 og Google Workspace, eru seld sérstaklega.

Er almenn tækniaðstoð innifalin í öryggispökkunum?

Umsýsla þeirra lausna sem tilheyra pakkanum er innifalin. Önnur tækniaðstoð er rukkuð samkvæmt tímagjaldi eða tekin af tímabanka þjónustusamnings.

Get ég keypt viðbótarlausnir án öryggispakka?

Já. Flestar hugbúnaðar- og þjónustulausnir Arínu er hægt að kaupa sjálfstætt, þar á meðal lykilorðastýringu, öryggisfræðslu og lénavarnir. Við aðstoðum einnig við að finna og setja saman aðrar lausnir eftir þörfum fyrirtækisins.

Hvaða þjónustuleið hentar fyrirtækinu mínu?

Það fer meðal annars eftir fjölda notenda og tækja, núverandi tæknilegu umhverfi og því hversu mikla aðstoð, umsjón og vöktun fyrirtækið þarf.

Við förum yfir stöðuna með þér og leggjum til þjónustuleið sem hentar rekstrinum.

Fáðu skýra tillögu

Segðu okkur frá rekstrinum, fjölda notenda og tækja og þeirri þjónustu sem þú þarft.

Við förum yfir stöðuna og setjum saman skýra tillögu með verði, umfangi og næstu skrefum.