Afritun

Gögnin eiga að vera til staðar þegar á reynir

Mistök, bilanir, árásir og eyðing gagna geta komið fyrir hjá öllum. Með réttri afritun er hægt að endurheimta gögn og koma rekstrinum aftur af stað.

Við sjáum um uppsetningu, eftirlit og aðstoð við endurheimt.

Af hverju þarf sérstaka afritun?

Gögn sem eru geymd í Microsoft 365 eða Google Workspace eru ekki sjálfkrafa varin gegn öllum tegundum gagnataps. Sérstök afritun bætir við varðveislu og endurheimt sem fyrirtækið stjórnar sjálft.

Hvað er hægt að afrita?

Tölvupóst, OneDrive, SharePoint, Teams og önnur mikilvæg gögn.

Gmail, Google Drive, sameiginleg drif, dagatöl og tengiliði.

Skrár eða heilar tölvur, eftir þeirri vernd sem þörf er á.

Hvernig þjónustan virkar

  1. Við förum yfir gögnin og endurheimtarþörfina.
  2. Við veljum viðeigandi leyfi og gagnamagn.
  3. Við setjum afritunina upp og fylgjumst með henni.
  4. Við aðstoðum við endurheimt þegar hennar er þörf.