Ráðgjöf og innleiðingar

Góð aðstoð þegar breytingar standa fyrir dyrum

Ný kerfi og breytt vinnulag eiga að auðvelda reksturinn. Við hjálpum þér að greina þörfina, velja réttu lausnina og koma henni í notkun með sem minnstri röskun.

Verkefni sem við tökum að okkur

  • Innleiðing Microsoft 365 og Google Workspace
  • Flutningur tölvupósts og gagna
  • Sameining eða aðskilnaður fyrirtækjaumhverfa
  • Öryggisúttektir og umbótaáætlanir
  • Tækja- og notendaumsjón
  • Sjálfvirkni og stafrænir verkferlar
  • Síma- og samskiptalausnir
  • Netkerfi, eldveggir og þráðlaus tenging
  • Val og kaup á búnaði

Uppbygging verkefnis

Við skiljum þörfina

Við byrjum á rekstrinum og því sem þarf að leysa.

Við mótum leiðina

Þú færð skýra tillögu að lausn, kostnaði og næstu skrefum.

Við sjáum um framkvæmdina

Við innleiðum lausnina, færum gögn og aðstoðum notendur.

Við fylgjum málinu eftir

Við sjáum til þess að lausnin virki og þróum hana áfram eftir þörfum.