Öruggari rekstur án óþarfa flækjustigs
Netöryggi snýst ekki aðeins um vírusvörn. Tölvur, notendaaðgangar, tölvupóstur og gögn þurfa að vinna saman sem ein heild.
Við hjálpum þér að velja, setja upp og reka varnir sem henta fyrirtækinu.
Hvað þarf að verja?
Varnir, eftirlit, uppfærslur og viðbrögð við óvenjulegri hegðun.
Fjölþáttaauðkenning, örugg lykilorð og rétt aðgangsstýring.
Varnir gegn svikum, fölsuðum sendingum og misnotkun lénsins.
Afritun, dulkóðun og örugg endurheimt.
Öryggispakkar Arínu
Við höfum sett saman öryggispakka fyrir mismunandi þarfir. Þeir sameina nauðsynlegar varnir í eina skýra þjónustu og hægt er að bæta við lausnum eftir því sem reksturinn kallar á.
Meðal lausna sem geta verið hluti af þjónustunni:
- Öryggisvarnir
- 24 tíma vöktun
- Öryggisafritun
- Lykilorðastýring
- Öryggisfræðsla
- Tölvupóstvörn
- Fjölþátta auðkenning
- Aðgangsstýring
Hversu vel er fyrirtækið varið?
Við getum farið yfir núverandi umhverfi, bent á veikleika og lagt til raunhæfar úrbætur.

